Fasteignaþróun á Íslandi

Við byggjum vandaðar eignir til framtíðar

Lúðvík Fasteignafélag er íslenskt fasteignaþróunarfélag sem byggir og selur vandaðar eignir til framtíðar. Við leggjum áherslu á gæði, góða hönnun og heiðarleg vinnubrögð í hverju verkefni.

Um okkur

Frá skammtímaleigu til byggingafélags

Lúðvík Fasteignafélag var stofnað um mitt ár 2020 af Eyþóri Jónssyni og Svani Þór Mikaelssyni á tímum COVID-19. Félagið hóf feril sinn í skammtímaleigu og rak þegar mest lét allt að sjö eignir.

Síðar var tekin ákvörðun um að selja leigueignirnar og einbeita sér að því að byggja vönduð heimili til sölu. Tómas Óskarsson gerðist meðeigandi og fyrsta byggingarverkefnið hófst í ársbyrjun 2024.

Lesa söguna
Fullbyggt verkefni Lúðvíks Fasteignafélags í Huldudal

Hefur þú áhuga á eign eða verkefni?

Hafðu samband og við veitum þér nánari upplýsingar um lausar eignir, teikningar og verð.