Móstekkur 84-86
Móstekkur 84-86, 800 Selfoss
Móstekkur 84–86 er nýtt og vandað parhús Lúðvíks Fasteignafélags á eftirsóttum stað á Selfossi. Um er að ræða tvær steinsteyptar eignir, Móstekk 84 og Móstekk 86, sem eru til sölu hvor í sínu lagi. Hvor eign er 205,6 m² með fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, sjónvarpsholi og rúmgóðum bílskúr.
Um eignina
Húsið er staðsteinsteypt og verður steinað með ljósri steiningu. Gluggar og hurðir eru í dökkum lit, ál- og trégluggar og litað járn á þaki. Innra skipulag er vandað: forstofa, rúmgóð stofa og eldhús, fjögur svefnherbergi með sérbaðherbergi innaf hjónaherbergi, sjónvarpshol, þvottahús og rúmgóður bílskúr. Innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi.
- Fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi
- Sérbaðherbergi innaf hjónaherbergi
- Rúmgóður bílskúr (43,2 m²) með innangengi úr þvottahúsi
- Gólfhitalagnir ísteyptar
Staða verkefnis
Húsið er í byggingu og afhendist á byggingarstigi B2 — fullbúið að utan með fullri einangrun og rakasperru, og veggir að innanverðu múraðir og tilbúnir til fínspörslunar. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar, teikningar og verð.
Einingar
Myndir
Hefur þú áhuga á eign eða verkefni?
Hafðu samband og við veitum þér nánari upplýsingar um lausar eignir, teikningar og verð.