Heiðarból 4
Til sölu

Heiðarból 4

Heiðarból 4, 230 Reykjanesbær

Heiðarból 4 er björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð á 3. hæð í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Reykjanesbæ. Íbúðin er 77,5 m² með svölum í vestur og fallegu útsýni. Eignin getur verið laus við kaupsamning.

Um eignina

Íbúðin skiptist í rúmgott hol, tvö svefnherbergi, bjarta stofu með útgengi á svalir og eldhús. Sameiginleg forstofa er flísalögð og stigagangur teppalagður.

  • Parket á gólfum í holi, stofu, eldhúsi og svefnherbergjum
  • Sprautuð innrétting og eldavél í eldhúsi
  • Flísalagt baðherbergi með upphengdu salerni, handklæðaofni og sturtu afstúkaðri með gleri; aðstaða fyrir þvottavél
  • Skápar í báðum svefnherbergjum og góður skápur í holi
  • Sér geymsla, u.þ.b. 5 m², á fyrstu hæð og sameiginleg hjóla- og vagnageymsla
  • Búið er að endurnýja neyslulagnir og glugga á austurhlið hússins

Staðsetning

Eignin er á mjög góðum stað í Heiðarskólahverfi, í göngufæri við verslun, skóla og leikskóla. Stutt er í helstu þjónustu og fallega náttúru Reykjaness.

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og til að bóka skoðun.

Hefur þú áhuga á eign eða verkefni?

Hafðu samband og við veitum þér nánari upplýsingar um lausar eignir, teikningar og verð.